Dagskrá Vetrarhátíðar í snjallsímann þinn

Dagskrá fyrir Vetrarhátíð í Reykjavik er fáanleg fyrir Iphone og Android tæki í gegnum hugbúnað sem hlaða má niður ókeypis í gegnum viðkomandi netverslun..

Dagskrá fyrir iPhone Dagskrá fyrir Android

Hannaðu þína eigin dagskrá

Nýja kerfið býður upp á að hanna á mjög einfaldan og skilvirkan hátt þína eigin dagskrá. Smellið á "Skoða dagskrá", veljið viðburð með því að smella á "Bæta við" og sjáið svo dagskrána ykkar með því að smella á "Mín Vetrarhátið í Reykjavik".

Skoða Dagskrá

Vetrarhátíð í Reykjavik

Vetrarhátíð í Reykjavík var fyrst haldin árið 2002 og er hún árlegur viðburður í Reykjavík. Í ár er Vetrahátíðin haldin frá 9. til 12. febrúar frá fimmtudegi til sunnudags. Þema hátíðarinnar í ár er Magnað Myrkur og endurspeglast það með ólíkum hætti í vel á þriðja hundrað uppákomum víðs vegar um borgina. Markmið hátíðarinnar er að lýsa upp mesta skammdegið með viðburðum og uppákomum af ýmsu tagi, stórum sem smáum, og gefur borgarbúum og gestum tækifæri til að taka þátt í fjölbreyttri dagskrá sér að kostnaðarlausu.

Safnanótt

Föstudaginn 10.febrúar verður Safnanótt haldin í áttunda sinn en þrjátíu og átta söfn hafa skráð sig til þátttöku og hefur fjöldinn aldrei verið meiri. Söfnin leggja mikinn metnað í fjölbreytta dagskrá sem gestir á öllum aldri geta notið fram undir miðnætti. Sérstakur safnanæturstrætó gengur á milli safnanna og auðveldar gestum að heimsækja fjölmörg söfn á einu kvöldi.

Sundlauganótt

Árið 2012 verður í fyrsta skipti haldin sérstök sundlauganótt á Vetrarhátíð en á laugardagskvöldinu 12.febrúar verður frítt í sund frá 20:00-24:00 og munu ýmiskonar listviðburðir fara fram í sundlaugum borgarinnar. Það er von okkar að Vetrarhátíð 2012 verði glæsileg, óvænt og spennandi hátíð fyrir alla borgarbúa og gesti höfuðborgarinnar og flestir finni eitthvað í dagskránni sem vekur áhuga þeirra.

Opnunaratriði Vetrarhátíðar

Hátíðin verður sett fimmtudaginn 9.febrúar klukkan 19:30 með opnunaratriði hátíðarinnar en í kjölfarið munu fara fram ýmsir viðburðir í miðborginni í almennri dagskrá sem stendur yfir til sunnudags.