
Safnanótt 12.febrúar 2010
Kærleikar sem hefjast kl. 18:00 við Austurvöll munu leiða okkur í Safnanóttina sem verður formlega sett kl. 19:00 á túninu við tjarnarbrúna. Borgarstjórinn í Reykjavík, Hanna Birna Kristjánsdóttir, setur Safnanóttina og að setningu lokinni tekur við ljósagjörningur bandaríska listamannsins Bill Fitzgibbons. Hann mun lýsa upp öndvegissúlur Ráðhússins og tónlistarmaðurinn Sverrir Guðjónsson skapar tónmynd við verkið. Yfir 30 söfn víðsvegar á höfuðborgarsvæðinu bjóða uppá fjölbreytta dagskrá sem gestir á öllum aldri fá notið fram til miðnættis . Sérstakur safnanæturstrætó gengur á milli safnanna og auðveldar gestum að heimsækja fjölmörg söfn á einu kvöldi.
Nóttin gæti svo endað á Lange Nacht der Museen í Berlín því einn heppinn þátttakandi í safnanæturleiknum hlýtur ferð með Iceland Express fyrir tvo á Safnanótt í Berlín í ágústlok.Vinningshafinn fær einnig 100.000 kr. í farareyri frá MP Banka.
Dagskráin í símann þinn
Sláðu inn get.mobileguide.is í farsímavafra til þess að sækja farsímaútgáfu Safnanætur
Sjá nánari leiðbeiningar hér
DAGSKRÁ SAFNANÆTUR EFTIR STAÐSETNINGU OG STRÆTÓLEIÐ (PDF 0,86 MB)
DAGSKRÁ A-Ö (PDF 0,87 MB)
Yfirlitskort yfir söfn (smellið á myndina til að sjá nánar)
