|

|
Alliance Française í Reykjavík
Alliance Française er frönskuskóli, franskt bókasafn og menningarmiðstöð
Tryggvagata 8, 101 Reykjavík alliance@af.is |
 |
Árbæjarsafn
Árbæjarsafn er útisafn og þar eru yfir 20 hús sem mynda torg, þorp og sveit. Flest húsin hafa verið flutt úr miðbæ Reykjavíkur. Þar er leitast við að gefa hugmynd um byggingalist og lifnaðarhætti í Reykjavík og á sumrin má þar sjá húsdýr og mannlíf fyrri tíma. Í safninu er boðið upp á fjölda sýninga og viðburða, þar sem einstökum þáttum í sögu Reykjavíkur eru gerð skil.
Kistuhylur 110 Reykjavík arbaejarsafn.is |
 |
Ásmundarsafn - Listasafn Reykjavíkur
Ásmundarsafn er helgað verkum Ásmundar Sveinssonar myndhöggvara (1893-1982) og var opnað formlega 1983. Það er til húsa í einstæðri byggingu sem listamaðurinn hannaði að mestu sjálfur og byggði á árunum 1942-50. Formhugmyndir hússins eru sóttar til Miðjarðarhafins, í kúluhús araba og píramída Egyptalands. Í byggingunni var bæði heimili og vinustofa listamannsins.
Sigtún 105 Reykjavík listasafnreykjavikur.is |
 |
Borgarbókasafn Reykjavíkur - Aðalsafn
Borgarbókasafn er almenningsbókasafn Reykvíkinga og er öllum opið. Þar er hægt að fá bækur af öllum toga og margt annað efni að láni, svo sem tónlist, kvikmyndir, tímarit og myndlist. Safnið stendur að auki fyrir fjölbreyttri dagskrá fyrir börn, unglinga og fullorðna allt árið um kring. Borgarbókasafn samanstendur af 7 söfnum, bókabílnum Höfðinga og sögubílnum Æringja.
Grófarhúsi Tryggvagata 15 101 Reykjavík borgarbokasafn.is |
 |
Borgarskjalasafn Reykjavíkur
Meginverkefni Borgarskjalasafns er móttaka eldri skjala frá stofnunum og fyrirtækjum borgarinnar, eftirlit og leiðbeiningar um skjalastjórn til stofnana borgarinnar og afgreiðsla fyrirspurna. Einnig söfnun einkaskjalasafna frá einstaklingum, félögum og fyrirtækjum í Reykjavík og kynning og miðlun safnkostins.
Grófarhús Tryggvagata 15 101 Reykjavík borgarskjalasafn.is |
 |
Bókasafn Garðabæjar
Bókasafn Garðabæjar er öllum opið, bæði börnum og fullorðnum. Þar má finna úrval bóka, tímarita og annarra gagna til fróðleiks og skemmtunar. Bókasafn Garðabæjar er upplýsinga- og menningarstofnun.
Garðatorgi 7 210 Garðabæ gardabaer.is/bokasafn/
|
 |
Bókasafn Hafnarfjarðar
Bókasafn Hafnarfjarðar er lifandi almenningsbókasafn í hjarta miðbæjarins. Setustofan með nýjustu tímaritunum og barnadeild safnsins eru notalegar og gott að eiga rólegheitastundir þar. Bókasafnið lánar ekki bara út bækur – það starfrækir stærstu tónlistardeild á landinu með ókeypis útlánum - og mynddeild sem býður upp á gott úrval af nýjum og eldri kvikmyndum með langri helgarleigu. Lesstofa er fyrir nemendur í framhalds- og háskólum og safnið hýsir Þýska bókasafnið. Bókasafn Hafnarfjarðar er í samstarfi við bókasöfnin í Kópavogi, Garðabæ og á Álftanesi. Hafi lánþegi gilt skírteini í einu safnanna getur hann nýtt sér þjónustu þeirra allra.
Strandgata 1 220 Hafnarfjörður hafnarfjordur.is/bokasafn |
 |
Bókasafn Kópavogs
Almenningsbókasafn, staður fyrir alla
Hamraborg 6a 200 Kópavogur bokasafnkopavogs.is |
 |
Byggðasafn Hafnarfjarðar
Vesturgata 8 220 Hafnarfjörður hafnarjordur.is/byggdasafn
|
 |
Gljúfrasteinn
Gljúfrasteinn var heimili og vinnustaður Halldórs Laxness og fjölskyldu hans um hálfrar aldar skeið. Íslenska ríkið keypti húsið árið 2002, þegar öld var liðin frá fæðingu skáldsins, og tveimur árum síðar var það opnað almenningi. Húsið er safn Halldórs Laxness þar sem heimili og vinnustaður hans eru látin haldast óbreytt.
Gljúfrasteinn 270 Mosfellsbær gljufrasteinn.is |
 |
Hafnarborg
Grunnurinn að Hafnarborg, menningar- og listastofnun Hafnarfjarðar, var lagður árið 1983, með gjöf þeirra hjóna Sverris Magnússonar og Ingibjargar Sigurjónsdóttur en þau gáfu Hafnarfjarðarbæ húseignina að Strandgötu 34 í Hafnarfirði ásamt listaverkasafni sínu og bókasafni. Hafnarborg var formlega opnuð sem menningar- og listastofnun Hafnarfjarðar í maí 1988 og varðveitir listaverkasafn Hafnarfjarðar og er rekin af Hafnarfjarðarbæ.
Strandgata 34 220 Hafnarfjörður hafnarborg.is |
 |
Hafnarhús - Listasafn Reykjavíkur
Hafnarhúsið er við hafnarbakkann í miðbæ Reykjavíkur. Hafnarhúsið er vettvangur Listasafns Reykjavíkur fyrir samtímalistir með áherslu á nýja miðla og fjölbreytt sýningahald á íslenskum og erlendum listamönnum. Í Hafnarhúsinu eru heimkynni Errósafnsins og þar eru reglulegar sýningar á verkum listamannsins.
Tryggvgata 17 101 Reykjavík listasafnreykjavikur.is |
 |
Héraðsskjalasafn Kópavogs
Safnið fer með umboð Þjóðskjalasafns á Kópavogssvæði og nær verksvið þess ekki einungis til bæjarkerfisins heldur einnig félaga, fyrirtækja og einstaklinga í bænum.
Hamraborg 1 200 Kópavogi Héraðsskjalasafn Kópavogs |
 |
Hofsstaðir, minjagarður
Minjagarðurinn að Hofsstöðum er aðili að Samtökum um sögutengda ferðaþjónustu. Garðurinn geymir minjar frá 9. öld og hafa rannsóknir varpað ljósi á líf og starfs fólks við upphaf byggðar á tímum víkinga.
Garðatorgi soguslodir.is |
| |
Hugmyndahús Háskólanna (Gamla Erlingssen)
Hugmyndahús háskólanna, sem er samstarfsverkefni Háskólans í Reykjavík og Listaháskóla Íslands. Hugmyndin á bak við verkefnið er að leiða saman ólíka einstaklinga úr öllum atvinnugreinum.
Grandagarði 2 101 Reykjavik hugmyndahus.is |
 |
Íslensk grafík - Grafíksafn Íslands
Íslensk grafík var stofnað árið 1954 af Jóni Engilberts, Jóni Þorleifssyni, Veturliða Gunnarssyni, Jóhannesi Jóhannessyni, Benedikt Gunnarssyni, Kjartani Guðjónssyni og Hafsteini Guðmundssyni. Markmið félagsins er að vera hagsmunafélag íslenskra grafíklistamanna, að stuðla að framgangi grafíklistar á Íslandi.
Tryggvagötu 17 (hafnarmegin) 101 Reykjavík islenskgrafik.is |
 |
Kjarvalsstaðir - Listasafn Reykjavíkur
Kjarvalsstaðir voru teknir í notkun árið 1973 en höfðu þá verið í byggingu frá árinu 1966. Arkitekt er Hannes Kr. Davíðsson en þetta er fyrsta byggingin á Íslandi sem sérstaklega er hönnuð fyrir myndlist. Auk tímabundinna sýninga á Kjarvalsstöðum eru þar reglulega sýningar á verkum Jóhannesar S. Kjarvals (1885-1972). Kjarval skipar sérstakan sess í íslenskri menningar- og listasögu sem einn ástsælasti listamaður þjóðarinnar fyrr og síðar.
Flókagata 24 105 Reykjavík listasafnreykjavikur.is |
| |
Kvikmyndasafn Íslands
Bæjarbíó Strandgötu 6 220 Hafnarfirði |
 |
Landnámssýningin Reykjavík 871±2
Á sýningunni gefur að líta rúst af skála frá 10. öld sem fannst hér við fornleifauppgröft árið 2001 og kynnast má lífinu á landnámsöld með nýjustu margmiðlunartækni.
Aðalstræti 16 101 Reykjavík minjasafnreykjavikur.is |
 |
Listasafn ASÍ
Safnið var stofnað árið 1961 þegar iðnrekandinn og bókaútgefandinn Ragnar Jónsson í Smára gaf Alþýðusambandinu listaverkasafn sitt. Safnið er eign Alþýðusambands Íslands og starfar samkvæmt reglugerð samþykkri af miðstjórn þess.
Ásmundarsal Freyjugata 41 101 Reykjavík listasafnasi.is |
 |
Listasafn Einars Jónssonar
Listasafn Einar Jónssonar á Skólavörðuhæð var opnað árið 1923 og hýsir heildarsafn verka Einars Jónssonar myndhöggvara. Auk sýningarsala er turníbúð listamannsins og Önnu Jónsson eiginkonu hans til sýnis. Opinn höggmyndagarður með inngang frá Freyjugötu er við húsið.
v/ Eiríksgötu og Freyjugötu skulptur.is
|
 |
Listasafn Íslands
Listasafn Íslands er þjóðlistasafn og merkasta safn íslenskrar myndlistar þar sem finna má verk eftir alla helstu myndlistarmenn þjóðarinnar.
Fríkirkjuvegur 7 101 Reykjavík listasafn.is |
 |
Listasafn Kópavogs - Gerðarsafn
Listasafn Kópavogs-Gerðarsafn á merkt safn eftir flesta af helstu listamönnum þjóðarinnar. Einkasafn Þorvaldar Guðmundssonar og Ingibjargar Guðmundsdóttur er í vörslu Gerðarsafn. Sýningarhald er fjölbreytt.
Hamraborg 4 200 Kópavogur gerdarsafn.is |
 |
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar hýsir höggmyndir og teikningar eftir Sigurjón Ólafsson myndhöggvara ásamt heimildum um listamanninn og er miðstöð rannsókna á list hans. Safnið er sjálfseignarstofnun, stofnuð að listamanninum látnum á heimili hans og vinnustofu árið 1984 og opnað almenningi 1988.
Laugarnestangi 70 105 Reykjavík lso.is |
 |
Ljósmyndasafn Reykjavíkur
Hlutverk Ljósmyndasafns Reykjavíkur er að varðveita ljósmyndir, glerplötur, filmur og skyggnur með þeim hætti að borgarbúar og gestir þeirra hafi sem bestan aðgang að ljósmyndun í eigu safnsins. Safninu er ætlað að byggja upp og varðveita safn íslenskra ljósmynda sem varpa ljósi á sögu greinarinnar, skrá það, varðveita og sýna. Leitast skal við að afla myndasafna sem endurspegla sem best íslenskan ljósmyndaarf, sem og myndefnis sem tengist Reykjavík. Markmið safnsins er að kynna bæði sögulega og samtímaljósmyndun í listrænu, félags- og menningarlegu samhengi.
Grófarhús Tryggvagata 15 101 Reykjavík ljosmyndasafnreykjavikur.is |
 |
Lækningaminjasafn Íslands - Nesstofa
Lækningaminjasafn Íslands er miðstöð safnastarfsemi á sviði lækna- og heilbrigðisvísinda. Safnið rekur Nesstofu sem var byggð á árunum 1761- 1763 sem embættisbústaður landlæknis. Húsið er eitt af elstu steinhúsum landsins og er hluti af húsasafni Þjóðminjasafns Íslands.
Bæjarskrifstofur Seltjarnarness Austurströnd 2 170 Seltjarnarnes
laekningaminjasafn.is |
 |
Lyfjafræðisafnið við Neströð á Seltjarnarnesi
Í Lyfjafræðisafninu eru til sýnis helstu tæki, sem notuð hafa verið til lyfjagerðar öldum saman. Einnig er í safninu hægt að sjá sýnishorn af apóteksinnréttingum, sem eru frá fyrstu tugum seinustu aldar.
Neströð 170 Seltjarnarnes |
 |
Minjasafn Orkuveitu Reykjavíkur
Minjasafnið er í senn byggðasögusafn og eitt fárra tækniminjasafna landsins. Þar eru varðveittir hvers kyns gripir er tengjast sögu veitufyrirtækja Reykjavíkur í hálfa öld.
Rafstöðvarvegur - Elliðaárdal 109 Reykjavík or.is/minjasafnid |
 |
Molinn
Molinn er menningar- og tómstundamiðstöð ungs fólks á aldrinum 16–24 ára og gjöf bæjarstjórnar handa ungu fólki í bænum á 50 ára afmæli bæjarfélagsins 2005.
Hábraut 2 200 Kópavogur molinn.is |
 |
Náttúrufræðistofa Kópavogs
Náttúrufræðistofan stendur fyrir sýningarhaldi á íslenskri náttúru og sinnir rannsóknum á sviði líffræði. Aðgangur er ókeypis.
Hamraborg 6a 200 Kópavogur natkop.is |
 |
Norræna húsið
Hlutverk Norræna hússins er að miðla norrænni menningu. Þar fara fram listsýningar, tónleikar, fyrirlestrar og ráðstefnur. Í húsinu er stærsta bókasafn á Norðurlöndum sem hefur eingöngu norrænar bækur. Veitngahúsið Dill hefur aðsetur í húsinu á matseðli þeirra er að finna Ny nordisk mat. Finnski arkítektinn Alvar Aalto hannaði Norræna húsið.
Sturlugata 5 101 Reykjavík
nordice.is |
 |
Samband íslenskra myndlistarmanna
Samband íslenskra myndlistarmanna (SÍM) var stofnað árið 1982. SÍM er hagsmuna og stéttarfélag liðlega 700 starfandi myndlistarmanna og rekur vinnustofur listamanna.
Hafnarstræti 16 101 Reykjavík sim.is |
 |
Sögusafnið
Í Sögusafninu eru 17 mjög raunsæjar leikmyndir frá þekktum atburðum og 30 sögufrægum persónum úr Íslandssögunni. Þetta er líflegt safn þar sem gestum gefst tækifæri til að kynnast Íslandssögunni í máli og myndum á skemmtilegan og fræðandi hátt.
Perlan sagamuseum.is |
 |
Tónlistarsafn Íslands
Hlutverk Tónlistarsafns Íslands er að safna og miðla heimildum um íslenska tónmenningu í fortíð og nútíð.
Hábraut 2 200 Kópavogur tonlistarsafn.is |
 |
Víkin - Sjóminjasafn
Frá upphafi byggðar á Íslandi hafa landsmenn byggt afkomu sína að meira eða minna leyti á fiskveiðum. Byggð við Faxaflóa var mjög háð fiskveiðum og útgerð og þéttbýlismyndun í Reykjavík og Hafnarfirði á 19. öld átti nánast alfarið rætur sínar að rekja tiil sjávarútvegs. Á 20. öld breyttust kjör Íslendinga gríðarlega til hins betra og í þeirri uppbyggingu skiptu fiskveiðar sköpum. Sjávarútvegur hefur því um langt skeið verið undirstaða velmegunar á Íslandi. Það er því skylda Íslendinga að halda vel utan um sögu og þróun sjávarútvegs og kynna komandi kynslóðum hér á landi, sem og erlendum gestum, hvernig sambúð Íslendinga var og er í dag við hafið og lífríki sjávar. Sjóminjasafninu í Reykjavík er m.a. ætlað að standa þá vakt.
Grandagarður 8 101 Reykjavík sjominjasafn.is |
 |
Þjóðmenningarhúsið
Þjóðmenningarhúsið er vettvangur fyrir íslenskan þjóðararf í hnotskurn. Starfsemin felst einkum í fjölbreyttu sýningahaldi.
Hverfisgata 15, 101 Reykjavík thjodmenning.is |
 |
Þjóðminjasafn Íslands
Þjóðminjasafn Íslands er vísinda- og þjónustustofnun í eigu íslenska ríkisins. Því er ætlað að vera miðstöð þjóðminjavörslu og rannsókna á menningarsögulegum minjum í landinu. Hlutverk þess er að auka og miðla þekkingu á menningararfi íslensku þjóðarinnar frá upphafi til vorra daga og stuðla að því að sem flestir geti haft gagn og gaman af sögu og minjum lands og þjóðar. Meginhluti safnhússins hýsir grunnsýningu Þjóðminjasafnsins: Þjóð verður til - menning og samfélag í 1200 ár.
Suðurgata 41 101 Reykjavík natmus.is |
 |
Þjóðskjalasafn Íslands
Þjóðskjalasafn Íslands er skjalasafn íslensku stjórnsýslunnar, þ.e. ráðuneyta, opinberra stofnana og fyrirtækja, en tekur einnig við og varðveitir einkaskjalasöfn einstaklinga og félaga. Þjóðskjalasafn varðveitir einnig skjöl sveitarfélaga, nema þau reki héraðsskjalasafn. þá veitir Þjóðskjalasafn ráðgjöf um opinbera skjalavörslu og er jafnframt rannsóknarstofnun í íslenskri sögu og skjalfræðum.
Laugavegur 162 105 Reykjavík
skjalasafn.is |