Dagskrá Vetrarhátíðar í snjallsímann þinn

Dagskrá fyrir Vetrarhátíð í Reykjavik er fáanleg fyrir Iphone og Android tæki í gegnum hugbúnað sem hlaða má niður ókeypis í gegnum viðkomandi netverslun.

Dagskrá fyrir iPhone Dagskrá fyrir Android

Hannaðu þína eigin dagskrá

Það er hægt er að hanna á mjög einfaldan og skilvirkan hátt eigin dagskrá. Smellið á "Skoða dagskrá", veljið viðburð með því að smella á "Bæta við" og sjáið svo dagskrána ykkar með því að smella á "Mín Vetrarhátið".

Skoða Dagskrá

Vetrarhátíð í Reykjavík

Vetrarhátíð í Reykjavík verður haldin dagana 9.-12. febrúar eða frá fimmtudegi til sunnudags. Þema ársins er Magnað Myrkur!

Það var rafmögnuð stemning á Skólavörðuholti við setningu Vetrarhátíðar í Reykjavík. Opnunaratriði hátíðarinnar umbreytti Hallgrímskirkju í stórbrotna upplifun, ljóss, lita og hreyfingar en en höfundur þess er Marcos Zotes. Atriðið mun prýða Hallgrímskirkju sunnudaginn 12. febrúar frá kl. 20-24.

Undraheimar Legó

Komdu og kannaðu undraheima Legó í Ráðhúsinu sunnudaginn 12. febrúar kl. 13-17. Sýslaðu með tannhjól, mótora og fleira og fáðu aðstoð við að skapa þín eigin módel eða byggja kastala eftir eigin teikningum.

Ljósmyndadagar

Ljósmyndadagar fara fram í fyrsta sinn á Vetrarhátíð í ár og er fjölbreytt dagskrá í boði. Ljósmyndasýningar verða settar upp á Lækjartorgi, Ráðhúsi Reykjavíkur, Tjarnarbíói og Sundhöll Reykjavíkur. Auk þess verða fjölmargir aðrir viðburðir eins og ljósmyndagreining og ljósmyndagöngur í stærstu hverfum borgarinnar.

Andar á sveimi í Höfða

Á Vetrarhátíð er opið hús í Höfða. Komdu um helgina og segðu okkur þína myrkrasögu sem geymd verður hjá Miðstöð munnlegrar sögu fyrir komandi kynslóð. Einnig fer fram miðilsfundur á léttum nótum þar sem magnaður spámiðill nær lýgilegu sambandi við framliðin stórmenni.