Hafnarborg

Leiðsögn um Endalokin Hafnarborg

Hvað segir módelið? Páll Haukur Björnsson sem sat fyrir hjá Ragnari Kjartanssyni í Feneyjum segir frá sýningunni og upplifuninni af því að vera hluti af listaverki í sex mánuði.

Opnar listmiðjur Hafnarborg

Opnar listmiðjur fyrir alla fjölskylduna. Á sýningunni Endalokin skipar módelið stóran sess. Á safnanótt verður aðstaða fyrir gesti á öllum aldri til að teikna, skoða og skapa.

Styttuganga um miðbæinn Hafnarborg

Gengið verður um miðbæ Hafnarfjarðar og útilistaverkin á svæðinu skoðuð með leiðsögn. Safnast saman við Bókasafn Hafnarfjarðar, Standgötu

Leiðsögn um Ljósbrot Hafnarborg

Ljósbrot - Ingunn Fjóla Ingþórsdóttir segir frá innsetningu sinni í Sverrissal.

Tríódúó Hafnarborg

Ungar tónlistarkonur flytja djass og ljúfri tónlist, latin og gömul íslensk dægurlög. Flytjendur eru þær Sóley Stefánsdóttir, harmonikka/píanó, Þórdís Gerður Jónsdóttir, selló og Rósa Guðrún Sveinsdóttir söngur.

Skoða geymslur Hafnarborg

Gestir fá tækifæri til að skyggnast á bakvið tjöldin í Hafnarborg og skoða geymslur safnsins í fylgd starfsmanna. Hver heimsókn er stutt og er tekið á móti gestum í litlum hópum 10 manns max.

Endalokin - hvað segir módelið? Hafnarborg

Páll Haukur Brynjólfsson sem sat fyrir hjá Ragnari Kjartanssyni í Feneyjum segir frá sýningunni og upplifuninni af því að vera hluti af listaverki í sex mánuði.

Tónlist í Hafnarborg - Hafnarborg, Hafnarfjörður Hafnarborg

Tónlistaratriði frá Tónlistarskóla Hafnarfjarðar og bræðrunum Ómari og Óskari Guðjónssyni ásamt Agnari Magnússyni munu flytja hressa tónlist á safnanótt í Hafnarborg í kaffistofu.