Safnanótt 12. febrúar 2010 - Dagskrá eftir strætóleið

Kærleikar leiða okkur inn í Safnanóttina

18:00

Hátíðin Kærleikar hefst á Austurvelli. Við sameinumst um að fagna kærleikanum og senda jákvæða strauma út í samfélagið. Á meðal góðra gesta er Páll Óskar sem mun flytja Sönginn um lífið. Haldið verður í kyndlagöngu meðfram tjörninni ásamt lúðrasveitinni Svanur. Gangan endar á samsöng kóra á túninu við tjarnarbrúna. Hugmyndasmiður og skipuleggjandi Kærleika er Bergljót Arnalds.

Austurvöllur og Reykjavíkurtjörn

Opnun Safnanætur: Öndvegissúlur - ljósaljóð

19:00

Borgarstjórinn í Reykjavík, Hanna Birna Kristjánsdóttir, setur Safnanóttina að Kærleikum loknum. Opnunaratriði Safnanætur að þessu sinni er ljósagjörningur bandaríska listamannsins Bill Fitzgibbons. Hann mun lýsa upp öndvegissúlur Ráðhússins og tónlistarmaðurinn Sverrir Guðjónsson skapar tónmynd við verkið. Fitzgibbons hefur komið víða við á ferli sínum og meðal annars hefur hann sýnt í Bretlandi, Þýskalandi, Svíþjóð, Finnlandi og Bandaríkjunum.

Verkið sést og heyrist best frá túninu við tjarnarbrúna.

Ráðhús Reykjavíkur, túnið við tjarnarbrúna

Kjarvalsstaðir, Listasafn Reykjavíkur

18:00 - 24:00

Opnun sýningarinnar Blæbrigði vatnsins
Yfirlit yfir sögu vatnslitamiðilsins frá upphafi íslenskrar myndlistarsögu til okkar daga. Leitast er við að gera framlagi margra af okkar þekktustu málurum góð skil en einnig að kynna minna þekkta listamenn sem hafa fundið hæfileikum sínum farveg í vatnslitaverkum.

18:00 - 24:00

Vatn og litur, smiðja fyrir alla fjölskylduna
Gestum gefst kostur á að kynna sér og gera tilraunir með vatnslitamiðilinn.

18:00 - 24:00

Vatnslitagjörningur, Blæbrigði vatnsins
Halldór Ásgeirsson myndlistarmaður vinnur vatnslitamálverk beint á glugga í forsal safnsins sem stendur svo áfram sem hluti sýningarinnar og tekur á sig breytingar eftir birtu og veðri.

19:30 - 20:00

Leiðsögn um Kjarval- Innsýn; skjaldmeyjar og hugarfley
Kjarval þróaði hugmyndir sínar með skissum og teikningum á fjölbreyttan efnivið sem síðar ganga aftur í málverkum hans. Á þessari sýningu sjáum við skipin sem hugarfley sem virðast brúa bilið milli mannheima og hulduheima. Hinn hluti sýningarinnar birtir endurtekið stef skjaldmeyjarinnar, táknmynd fjallsins Skjaldbreiðar sem var eitt hjartfólgnasta myndefni listamannsins á Þingvöllum.

20:30 - 21:15

Leiðsögn um sögu og byggingarlist Kjarvalsstaða
Leiðsögn um sögu og byggingarlist Kjarvalsstaða með Guju Dögg Hauksdóttur, deildarstjóra byggingarlistardeildar Listasafns Reykjavíkur.

21:30 - 22:00

Sönghópurinn Blikandi stjörnur
Sönghópurinn Blikandi stjörnur er landsþekktur gleðigjafi en hefur einnig komið fram á listahátíðum fatlaðra víða erlendis og fengið viðurkenningu Evrópusambandsins fyrir besta atriðið í sínum flokki. Blikandi Stjörnur gáfu nýverið út geisladisk með atvinnutónlistarmönnum og hefur hann hlotið frábærar viðtökur.

22:00 - 24:00

Argentínskur tangó fyrir alla

Kjarvalsstaðir, Flókagötu 5

Listasafn ASÍ

19:00 - 24:00

Að muna sinn fífil fegurri
Sýning Guðrúnar Gunnarsdóttur. Horft er á fíflana frá ýmsum sjónarhornum og unnið með ýmiss konar tækni í margvísleg efni svo sem útsaum, plöstun, vír og pappírsklipp. Á sýningunni er ekki verið að endurgera fífla, heldur að miðla upplifun á formi og litum fíflanna út frá skapandi vinnu. Fífillinn kemur upp á vorin sprækur og kátur með sínum heiðgulu blómum sem verða síðan að biðukollum sem svífa dreymandi um loftin blá. Fífillinn leggst í dvala síðsumars og er með fyrstu vorboðum okkar Íslendinga.
Sýningin er tileinkuð Íslendingum með óskum um bjarta framtíð.

19:00 - 24:00

Heimild um horfinn tíma.
Guðmundur Ingólfsson ljósmyndari (fæddur 1946) hlaut menntun sína í Þýskalandi á árunum 1968-71, en hefur starfað á eigin vegum í Reykjavík frá 1972. Myndirnar sem hann sýnir í Listasafni ASÍ í boði Guðrúnar Gunnarsdóttur eru úr syrpu ljósmynda af rýmum sem hann hefur ljósmyndað frá árinu 1993, flestar úr lýsis- eða olíutönkum frá ýmsum stöðum á landinu.

19:30 & 21:00 & 23:00

Listamannaspjall
Listamannaspjall. Guðrún Gunnarsdóttir og Guðmundur Ingólfsson fjalla um sýningar sínar Að muna sinn fífil fegurri og Heimild um horfinn tíma.

20:30 & 22:00

Tríó Vadim Fyodorov. Franskir draumar fyrir harmónikku, gítar og kontrabassa
Tríóið er nefnt eftir upphafsmanni þess, rússneska harmónikkusnillingnum Vadim Fyodorov. Hljómsveitin leikur franska musett- og jazz tónlist í hefðbundinni franskri hljómsveit þ.e.a.s. harmónikka, kontrabassi og gítar. Auk Vadims skipa hljómsveitina Gunnar Hilmarsson á gítar og Leifur Gunnarsson á kontrabassa. Vadim er fæddur í Pétursborg í Rússlandi árið 1969. Hann byrjaði að læra á nikkuna aðeins 6 ára gamall og stundaði framhaldsnám í Rússlandi og Þýskalandi. Vadim hefur verið búsettur á Íslandi í nær áratug og er án efa einn fremsti starfandi harmónikkuleikari á Íslandi.

Listasafn ASÍ, Freyjugötu 41

Listasafn Einars Jónssonar

20:00 & 22:00

Leiðsögn
Listasafn Einars Jónssonar er tileinkað verkum Einars Jónssonar myndhöggvara (1874-1954) sem var fyrsti íslenski myndhöggvarinn og hóf feril sinn í upphafi 20. aldar eftir listnám í Kaupmannahöfn með þátttöku á Vorsýningunni á Charlottenborg þar sem hann sýndi verkið "Útlagar". Eftir margra ára dvöl í Danmörku sneri hann til Íslands árið 1914 til að undirbúa byggingu safns yfir verk sín sem hann hafði ánafnað íslensku þjóðinni. Hann valdi safninu stað á Skólavörðuholti, sem þá var óbyggt, og hófst bygging hússins eftir uppdráttum listamannsins og Einars Erlendssonar arkitekts síðla sumars 1916.

Leiðsögn um safnið á Safnanótt fylgd Júlíönu Gottskálksdóttur, forstöðumanns safnsins, hefst í aðalsýningarsal hússins.

Listasafn Einars Jónssonar, inngangur frá Eiríksgötu.

Listasafn Íslands

20:00 & 22:30

Carnegie Art Award 2010, leiðsögn
Leiðsögn um sýninguna Carnegie Art Award 2010. Sýningunni er ætlað að kynna norræna nútímalist. Verðlaunin, sem eru meðal veglegustu myndlistarverðlauna heims, komu að þessu sinni í hlut Kristjáns Guðmundssonar. Halldór Björn Runólfsson leiðir gesti um sýninguna.

21:00 - 21:30

Íslandslestin/tískusýning
Kynnist fyrsta íslenskajárnbrautarfélaginu, Icelandtrain. Etienne de France, ungur, franskur listamaður búsettur í Reykjavík, sýnir verkið Fyrsta íslenska járnbrautarfélagið, Icelandtrain, í Alliance Française á Safnanótt. Í tengslum við sýninguna verður tískusýning í Listasafni Íslands þar sem frumsýndir verða 5 einkennisbúningar Icelandtrain fyrir konur og karla.

Listasafn Íslands, Fríkirkjuvegi 7

Þjóðminjasafn Íslands

19:00 & 20:30

Kvikmyndasýning: Palli var einn í heiminum

Leikin íslensk barnamynd eftir Ásthildi Kjartansdóttur byggð á samnefndri barnabók eftir Jens Sigsgaard. Sýningin tekur um 30 mínútur. Myndin verður sýnd í fyrirlestrarsal.

19:30 & 21:00

Draumkenndur dans - Klassíski Listdansskólinn.
Draumkenndur dans: 1. og 2. árs nemendur frá Klassíska listdansskólanum sýna dansverkið Meðfær sem er samið af nemendunum sjálfum og kennurum skólans. Verkið mun leiða áhorfendur í gegnum safnið í skemmtilegum dansi.

20:00 – 20:30

Karlakór
Karlakórinn Þrestir flytur gestum og gangandi fagra tóna á Þjóðminjasafni Íslands.

22:00 – 23:00

Draumur um draum - Kvikmyndasýning
Leikin íslensk mynd byggð á ævi og ritverkum Ragnheiðar Jónsdóttur en hún er hvað þekktust fyrir að hafa skrifað Dórubækurnar og Þóru-baráttusögu. Með aðalhlutverk fara Elva Ósk Ólafsdóttir, Herdís Þorvaldsdóttir og Baltasar Kormákur. Myndin er um 1 klst að lengd.

22:15 - 24:00

Vasaljósaganga Göngum saman
Styrktarfélagið Göngum saman leiðir göngu frá Þjóðminjasafni að Vesturbæjarlaug sem verður af því tilefni opin til miðnættis. Eftir sundið er gestum boðið upp á heitt súkkulaði. Þátttakendur geta keypt skemmtileg vasaljós áður en lagt er af stað, en andvirði þeirra rennur til grunnrannsókna á brjóstakrabbameini.

21:30 – 22:00

Íslenskur alþýðusöngur í 1000 ár
Íris Ólöf Sigurjónsdóttir og Hjörleifur Hjartarson syngja íslensk þjóðlög og sönglög allt frá miðöldum og fram á okkar daga í einföldum, tvíradda, útsetningum með gítarslætti.

Þjóðminjasafn Íslands, Suðurgötu 41

Norræna húsið

19:00 – 24:00

Sýningin 52 húfur
Edda Lilja Guðmundsdóttir setti sér það markmið að hekla eða prjóna eina húfu á viku allt árið 2009. Skilyrði var að engar tvær húfur væru eins og að þær væru allar gerðar úr garni sem hún átti þegar til í fórum sínum.

19:00 - 24:00

Meistari Alvar Aalto
Í bókasafni Norræna hússins er sérstök sýning á bókum um arkitekt hússins, hinn finnska Alvar Aalto.

19:00 - 24:00

Mótmælandi Íslands
Sýning á veggspjöldum Helga heitins Hóseasonar. Helgi var þekktur fyrir mótmæli sín allt frá árinu 1962 og var oft nefndur „mótmælandi Íslands“. Hann var þekktur fyrir mótmæli sín gegn ríki, dómstólum og kirkju landsins. Helgi var líka þekktur fyrir að hafa slett skyrhræringi á forseta Íslands, biskup og alþingismenn við setningu Alþingis árið 1972.

20:00 - 24:00

Norrænn jazz
Norrænn jazz með þátttöku jazzleikara frá Íslandi, Finnlandi og Noregi. Tónleikarnir eru á klukkutíma fresti.

Norræna húsið, Sturlugötu 5

Lyfjafræðisafnið

19:00 - 24:00

Lyfjafræðisafnið leiðsögn
Lyfjafræðingar bjóða uppá leiðsögn, en auk þess verður sýnt myndband kl. 20 og 22 um gamla framleiðsluhætti í apótekum. Sýning myndbandsins tekur u.þ.b. klukkustund.

Lyfjafræðisafnið, Neströð Seltjarnarnesi

Söfnin í Nesi - Nesstofa

19:30 – 20:15

Söngvastund í Nesstofu
Félagar í Selkórnum syngja nokkur lög

20:30 – 21:30

Leiðsögn um Nesstofu
Gengið með gestum um Nesstofu og sagt frá sögu Ness, Nesstofu og uppbyggingu safnasvæðisins.

Nesstofa, Seltjarnarnesi

Víkin - Sjóminjasafnið í Reykjavík

19:30 - 21:00

Sæskrímsli
Sæskrímsli eru þau draumur eða veruleiki? Svabbi sjóari úr Stundinni okkar fræðir börn um skrímslin.

20:30 – 22:00

Spákonur spá í spilin
Fyrrum borgarfulltrúar Guðrún Ögmundsdóttir og Sigrún Magnúsdóttir gerast spákonur á draumkenndri safnanótt.

21:00 - 21:30

Hafið í leikritum
Gunnar Eyjólfsson leikari stendur á þilfari gamla Gullfoss og horfir yfir fólkið á bryggjunni í Bryggjusalnum og flytur leikþátt úr „Hart í bak.“

22:00 - 23:30

Bryggjuball á Sjóminjasafninu
Harmonikufélag Reykjavíkur leikur fyrir dansi, skemmtun fyrir alla fjölskylduna.

Víkin - Sjóminjasafnið í Reykjavík - Varðskipið Óðinn

20:00 – 22:00

Ratleikur um borð í Varðskipinu Óðni
Skemmtilegur ratleikur fyrir alla fjölskylduna um borð í Varðskipinu Óðni.

Varðskipið Óðinn við Víkina - Sjóminjasafnið í Reykjavík, Grandagarði 8

Hugmyndahús Háskólanna (Gamla Ellingsen)

20:00 - 24:00

Myndlistarsýning Félags frístundamálara
Samsýning 45 frístundamálara. Einnig opið laugardag og sunnudag.

Hugmyndahús Háskólanna, Grandagarði 2

Alliance Française

19:00 - 24:00

Íslandslestin – Draumur eða raunveruleiki?
Kynnist fyrsta íslenska járnbrautarfélaginu, Icelandtrain: Etienne de France, ungur, franskur listamaður búsettur í Reykjavík, sýnir í fyrsta sinn íslenska járnbrautarfélagið, Icelandtrain. Í tengslum við sýninguna, verður tískusýning í Listasafni Íslands, þar sem verða frumsýndir 5 einkennisbúningar Icelandtrain fyrir konur og karla.

Alliance Francaise,Tryggvagötu 8

Borgarbókasafn Reykjavíkur

20:00 & 22:00

Borgarbókasafn Reykjavíkur - Himininn yfir Berlín
Kvikmynd Wim Wenders, Himinninn yfir Berlín frá 1987 verður sýnd í Kamesinu, nýju fjölnotarými í tónlistar- og myndbandadeild Borgarbókasafns á 5. hæð Grófarhúss. Myndin er að hluta innblásin af ljóðlist Rilke, en hún segir frá tveimur englum sem vaka yfir Berlínarborg og fylgjast með lífi borgarbúa. Fólki er líka velkomið að tylla sér niður og horfa á hluta myndarinnar.

20:30 – 24:00

Ljóðaslamm
Ungt fólk etur kappi í orðlist. Ljóð verða flutt á nýstárlegan hátt og ljóðagjörningar framdir í bland við tónlist, myndefni, dans og fleira. Dómnefnd velur þrjú bestu atriðin. Þema kvöldsins er VÆMNI.

Borgarbókasafn Reykjavíkur, Tryggvagötu 15, Grófarhús

Borgarskjalasafn Reykjavíkur

19:00 – 21:00

Fjörug Klezmertónlist með Varsjárbandalaginu
Meðlimir úr Varsjárbandalaginu koma til skjalanna og leika fjöruga Klezmertónlist.

19:00 - 21:00

Barnahorn
Í barnahorninu geta börnin komið og teiknað og litað, gluggað í bækur og blöð. Börnin fá blöðru og blýant með sér heim.

19:00 - 23:59

Minningar úr lífi hjóna
Sýnd skjöl úr safni hjóna, bæði ástarbréf og annað. Venjuleg hjón í Reykjavík, nú látin, en saga þeirra lifir þar sem afkomendur komu skjalasafni þeirra til varðveislu á Borgarskjalasafni Reykjavíkur.

19:00 - 23:59

Skjalasafnið þitt
Hringinn í kring um landið eru 20 héraðsskjalasöfn sem öll vinna að því að safna og varðveita sögu byggðalaga sinna. Borgarskjalasafn Reykjavíkur er eitt þeirra. Á Safnanótt verður hlutverk þeirra og starf kynnt.

19:00- 21:00

Láttu drauminn rætast!
Sigrún Gunnarsdóttir, reikimeistari verður með draumaráðningar fyrir einstaklinga. Fólk getur komið með eigin draum til Sigrúnar uppskrifaðan eða sagt frá honum og fengið hann ráðinn. Hver draumaráðning kostar kr. 500 sem greiðist beint til Sigrúnar. Láttu drauminn rætast!

19:00 -23:59

Freyðandi kaffi
Dansverk unnið af 3ja árs nemum Klassíska listdansskólans, undir leiðsögn River Carmalt. Verkið var og sýnt á Unglist 2009. Sýnt á skjá öðru hvoru allt kvöldið.

22:00 & 22:30

This is not entertainment
Nútímadansverk sérstaklega skapað og aðlagað að umhverfinu á Borgarskjalasafni Reykjavíkur. Samið og dansað af Kama Jezierska og River Carmalt sem eru kennarar við Klassíska listdansskólann.

23:00 – 23:45

Draumar mínir
Borgarskjalasafn Reykjavíkur hefur tekið við draumum fólks frá 28. janúar sl., hvort sem það eru dagdraumar eða næturdraumar. Í lok Safnanætur fer Borgarskjalasafnið á rólegu nóturnar og lesnir verða nokkrir valdir draumar fólks áður en horfið er heim á leið. Ljúf stund saman.

Borgarskjalasafn Reykjavíkur, Tryggvagötu 15, Grófarhús

Ljósmyndasafn Reykjavíkur

19:00 - 24:00

Kafað í safnkost
Hjálpaðu okkur að þekkja fólk og staði á ljósmyndunum. Þekkirðu umhverfið eða manneskjuna á myndinni?

20:00 - 24:00

Sviðsett ljósmyndun– Ikae & Da Boyz
Oddvar verður á staðnum og segir frá vinnuferlinu hvernig hann vinnur sínar litríku og gáskafullu ljósmyndir.

20:00 - 24:00

Sígildar ljósmyndunaraðferðir
Jóna Þorvaldsdóttir gefur gestum og gangandi innsýn í töfraheim sígildra ljósmyndunaraðferða.

20:45 - 21:15

Andstæður
Þriðja árs nemar frá Klassíska Listdansskólanum sýna verk innblásið af sýningunum Skynjanir og Gengið að verki.

Ljósmyndasafn Reykjavíkur, Tryggvagötu 15, Grófarhúsi

Hafnarhús, Listasafn Reykjavíkur

19:00 - 19:45

Leiðsögn um sögu og byggingarlist Hafnarhússins
Leiðsögn um sögu og byggingarlist Hafnarhússins með Guju Dögg Hauksdóttur, deildarstjóra byggingarlistardeildar Listasafns Reykjavíkur.

19:30 - 22:30

Tunglið og geimferðir – fjölskyldusmiðja
Fjölskyldusmiðja tengd sýningu Erró - Geimfarar. Stjörnuskoðunarfélag Seltjarnanes býður gestum að taka þátt í smiðju um tunglið og geimferðir.

20:30 - 21:00

Leiðsögn Erró – Mannlýsingar
Á sýningunni Erró – Mannlýsingar er lögð áhersla á frásagnar portrett eða mannlýsingar sem Erró hefur þróað í gegnum tíðina. Verkin eru af ýmsum þekktum einstaklingum á sviði stjórnmála, vísinda, bókmennta og lista.

21:00 - 21:30

Gjörningur – Ljóslitlífun
Sigtryggur Berg Sigmarsson einn listamannanna á sýningunni Ljóslitlífun flytur gjörning.

21:30 - 22:30

Ljóslitlífun – sýningarstjóraspjall.
Hafþór Yngvason safnstóri Listasafns Reykjavíkur ræðir við gesti um sýninguna. Á sýningunni er hópur ungra íslenskra listamanna sem hafa lagt stund á málaralist á síðustu árum. Listamennirnir eru Davíð Örn Halldórsson, Gabríela Friðriksdóttir, Guðmundur Thoroddsen, Heimir Björgúlfsson, Helgi Þórsson, Jón Henrysson, Ragnar Jónasson, Sara Riel, Sigga Björg Sigurðardóttir, Sigtryggur Berg Sigmarsson og Þórdís Aðalsteinsdóttir.

22:30 – 23:30

Stilluppsteypa – tónleikar
Hljómsveitina skipa Helgi Þórsson og Sigtryggur Berg Sigmarsson sem báðir eiga verk á sýningunni Ljóslitlífun.

Hafnarhús, Tryggvagötu 17

Íslensk grafík - Grafíksafn Íslands

19:00 - 24:00

Íslensk grafík
Soffía Sæmundsdóttir og Kristín Gunnlaugsdóttir eru listamenn ársins hjá grafíkvinum í félaginu Íslensk grafík 2010. Kristín opnar sýningu í sal félagsins og Soffía vinnur á verkstæðinu. Listakonurnar kynna báðar grafíkvinaverk sín ásamt fleiri verkum. Örfá eldri grafíkvinaverk eru enn fáanleg og verða til sölu á Safnanótt ásamt bolum merktum merki félagsins sem hannað var af Jóni Engilberts.

Íslensk grafík – Grafíksafn Íslands, Tryggvagötu 17 hafnarmegin

Samband íslenskra myndlistarmanna

19:00 - 24:00

Sigríður Rut - Listamaður mánaðarins hjá SÍM
Í SÍM húsinu gefur að líta sýningu Sigríðar Rutar, en hún sýnir olíumálverk sem unnin eru á árunum 2001-2008. Myndefnið sem hefur verið henni hugleikið um tíma eru fíflar og lauf. Sigríður verður á staðnum og tekur á móti gestum.

SÍM, Hafnarstræti 16

Landnámssýningin

20:00 - 21:00

Draumar í Sturlungu og draumarnir okkar
Fyrirlestur Guðrúnar Nordal forstöðumanns stofnunar Árna Magnússonar.

21:00 & 22:00 & 23:00

Leiðsögn um Landnámssýninguna Aðalstræti 16
Hvernig var lífið á Landnámsöld?

Landnámssýningin, Aðalstræti 16

Þjóðmenningarhúsið

19:00 - 24:00

ÍSLAND::KVIKMYNDIR
11. skjárinn. Frumsýning. Á Safnanótt bætist 11. skjárinn við sýninguna. Þar verða sýnd valin brot úr kvikmyndunum The Good Heart, Sólskinsdreng, Sveitabrúðkaupi og Brúðgumanum. Á sýningunni eru yfir hundrað íslenskar kvikmyndir frá upphafi íslenskrar kvikmyndasögu til dagsins í dag aðgengilegar í fullri lengd. VÍNBAR og gestakomur. Í samstarfi við Kvikmyndamiðstöð Íslands.

19:00 - 24:00

ÓÞEKKTUR HÖFUNDUR
Gestum Þjóðmenningarhússins gefst færi á að endurraða íslenskri hugsun liðinna alda að eigin skapi. Safnað hefur verið orðum úr hundruðum lausavísna óþekktra höfunda og þau bíða gesta til notkunar. Dagskrárgerð: Þorvaldur Þorsteinsson myndlistarmaður og rithöfundur.

21:00 – 22:00

Íslendingar
Íslendingar er nýopnuð sýning þeirra Sigurgeirs Sigurjónssonar og Unnar Jökulsdóttur á ljósmyndum úr samnefndri bók. Unnur verður á sýningunni milli kl. 21 og 22 og spjallar við gesti um myndirnar og bókina. Tvær vinkonur hennar kíkja í heimsókn og saman spila þær nokkur lög á harmónikkurnar sínar.

22:30

ÓLÖF ARNALDS
Sólótónleikar Ólafar Arnalds í Bókasal.

Þjóðmenningarhús, Hverfisgötu 15

Þjóðskjalasafn Íslands

19:00 – 23:30

Einkaskjalasöfn
Áttu merkileg skjöl? Eiga þau erindi á safn? Komdu og láttu sérfræðinga Þjóðskjalasafns kanna gildi þeirra.

19:00 – 23:30

Gömul skrift
Reyndu að skrifa og lesa gamla skrift. Verðlaunagetraun.

19:00 – 23:30

Kynning á manntalsvef og dómabókagrunni
Kynning á manntalsvef og dómabókagrunni.

19:00 – 23:30

Kynning á ættfræðirannsóknum
Finndu forfeður í kirkjubókum. Fáðu leiðsögn hjá sérfræðingum safnsins.

19:00 – 23:30

Sýning á frumritum manntala frá árunum 1703 og 1762
Elstu manntöl á Norðurlöndum.

20:00 – 20:30

„...þegar aldurinn á færist og vitið eykst“
Gunnar Örn Hannesson fjallar um aðlögunarvanda Hallgríms „litla“ Þorlákssonar að skólastarfinu í Skálholti á 17. öld.

20:00 - 22:00

Forvarsla gamalla skjala
Starfsmenn Þjóðskjalasafns sýna hreinsun gamalla skjala.

21:00 – 21:30

Fyrsti íslenski raðmorðinginn?
Ólafur Ásgeirsson fjallar um hinn þekkta morðingja Axlar-Björn og samtíð hans.

Lestrarsalur Þjóðskjalasafns Íslands, Laugarvegi 162. Gengið inn frá Laugavegi.

Héraðsskjalasafn Kópavogs

19:00 - 23:59

Pólitískir draumar og martraðir
Sýning um kosningar í Kópavogi. Myndir frá framboðsfundum, kosningaauglýsingar og áróður fyrir augu og eyru.

Héraðskjalasafn Kópavogs, Hamraborg 1

Náttúrufræðistofa Kópavogs, Safnahúsinu

19:00 – 24:00

Þorirðu að kíkja?
Óræður skapnaður leynist á bak við tjöldin í einum sýningarbás Náttúrufræðistofunnar. Er hann lífs eða liðinn? Manngerður eða náttúrulegur? Komdu og kíktu ef þú þorir!

21:00 – 22:30

Eru fuglarnir guðir?
Þorvaldur Friðriksson skrímslafræðingur með meiru leiðir næturgesti um skuggalega sýningarsali Náttúrufræðistofunnar og fræðir fólk um táknræna merkingu íslenskra fugla og fleiri dýra í trúarbrögðum og draumförum manna.

Náttúrufræðistofa Kópavogs, Hamraborg 6a

Bókasafn Kópavogs

19:30 - 20:00

Draumagrípari
Halla Frímannsdóttir fjallar um tákn drauma meðal ólíkra þjóða.

20:00 – 20:30

Blikandi stjörnur
Sönghópurinn Blikandi stjörnur, stjórnandi Ingveldur Ýr.

20:30 – 21:00

Draumar og ráðingar þeirra
Þóra Elfa Björnsson fjallar um drauma og draumaráðningar.

22:00 – 23:00

Draumaráðningar
Kristján Frímanns ræður drauma.

23:00 – 23:45

Varsjárbandalagið
Varsjárbandalagið leikur tónlist frá Balkanlöndum og Klezmertónlist.

Bókasafn Kópavogs, Hamraborg 6a

Listasafn Kópavogs-Gerðarsafn

19:00 - 24:00

Gerðarlegt í Gerðarsafni
Hugmyndir og hönnun ýmissa listamanna sem byggja á verkum Gerðar Helgadóttur, unnin fyrir safnbúð Gerðarsafns.

19:00 – 24:00

Til þess er leikurinn Gerður
Sýning á verkum sem nemendur í barnadeildum Myndlistarskóla Kópavogs hafa unnið að undanförnu út frá verkum Gerðar Helgadóttur í samvinnu við Gerðarsafn.

Kökudraumur í kaffistofu. Góðar og gerðarlegar veitingar.

Gerðarsafn, Hamraborg 4

Molinn - menningarhús ungs fólks

19:00 - 24:00

Urban myndlist & underground Café
Götulist eftir Guðmund Óla aka. ELLT, lifandi tónlist og kaffihúsið opið.

Molinn – menningarhús ungs fólks, Hábraut 2

Tónlistarsafn Íslands

20:00 & 22:00

Draumurinn um tónlistarsafn
Bjarki Sveinbjörnsson, forstöðumaður Tónlistarsafns Íslands leitast við að svara spurningunni: "Hvers vegna tónlistarsafn?".

Tónlistarsafn Íslands, Hábraut 2

Bókasafn Garðabæjar

20:00 - 20:30

Landnámsmenn í Garðabæ
Ragnheiður Traustadóttir fornleifafræðingur flytur stuttan fyrirlestur um landnámsmenn í Garðabæ. M.a. verður greint frá fornleifarannsóknunum og uppgreftrinum við Hofsstaði. Áhugasamir geta að loknum fyrirlestri gengið út að Hofsstöðum (3 mín gangur) og þar verður leiðsögn um minjagarðinn.

21:30 - 22:00

Ragnheiður Gröndal - íslensk vögguljóð
Ragnheiður Gröndal söngkona flytur íslensk vögguljóð ásamt undirleikara.

Bókasafn Garðabæjar, Garðatorgi

Hofsstaðir, minjagarður

20:45 – 21:15

Hofsstaðir - leiðsögn um minjagarðinn
Ragnheiður Traustadóttir fornleifafræðingur verður með leiðsögn um minjagarðinn að Hofsstöðum. Reisulegur skáli stóð á Hofsstöðum frá landnámsöld fram á 12. öld. Minjagarðurinn gefur vísbendingu um hvernig var umhorfs á þessum stað á víkingaöld. Við minjarnar er hægt að skoða fróðlegt og skemmtilegt margmiðlunarefni sem sýnir líf og störf fyrstu íbúa Hofsstaða.

Hofsstaðir, Garðatorgi

Byggðasafn Hafnarfjarðar

20:00 - 20:30

Fornleifar í landi Óttarsstaða
Katrín Gunnarsdóttir, fornleifafræðingur, heldur fyrirlestur um fornleifar í landi Óttarsstaða sunnan Hafnarfjarðar.

21:00 - 21:30

Klassíski listdansskólinn
Nemendur á þriðja stigi í Klassíska listdansskólanum sýna nútímaverk.

22:00 - 22:40

Leiðsögn um sýningu Byggðasafnsins
Safnverðir leiða gesti í gegnum sögu Hafnarfjarðar og nágrennis með leiðsögn um sýninguna „Þannig var...“

Byggðasafn Hafnarfjarðar, Vesturgötu 8

Hafnarborg

19:00 – 19:30

Leiðsögn um Endalokin
Sagt frá sýningu Ragnars Kjartanssonar sem var framlag Íslands til Feneyja tvíæringsins 2009.

19:00 - 24:00

Opin listsmiðja
Opin listmiðja fyrir alla fjölskylduna. Á sýningunni Endalokin skipar módelið stóran sess. Aðstaða fyrir gesti á öllum aldri til að teikna og spá í módelteikningu - skoða og skapa.

19:30 - 20:30

Styttuganga um miðbæinn
Gengið verður um miðbæ Hafnarfjarðar og útilistaverkin á svæðinu skoðuð með leiðsögn. Safnast saman við Bókasafn Hafnarfjarðar, Standgötu 1.

20:00 – 20:30

Leiðsögn um Ljósbrot
Ljósbrot - Ingunn Fjóla Ingþórsdóttir segir frá innsetningu sinni í Sverrissal.

20:30 - 21:30

Tríó dúó
Djass og ljúf tónlist, latin og gömul íslensk dægurlög í flutningi ungra tónlistarkvenna. Flytjendur eru þær Sóley Stefánsdóttir, harmonikka/píanó, Þórdís Gerður Jónsdóttir, selló og Rósa Guðrún Sveinsdóttir söngur.

21:00 – 22:00

Á bak við tjöldin
Gestir fá tækifæri til að skyggnast á bakvið tjöldin í Hafnarborg og skoða geymslur safnsins í fylgd starfsmanna. Hver heimsókn er stutt og er tekið á móti gestum í litlum hópum, hámark 10 gestir í einu.

21:30 – 22:30

Hvað segir módelið?
Páll Haukur Björnsson sem sat fyrir hjá Ragnari Kjartanssyni í Feneyjum segir frá sýningunni og upplifuninni af því að vera hluti af listaverki í sex mánuði.

Hafnarborg, Strandgata 34

Bókasafn Hafnarfjarðar

19:00 - 24:00

Drekar af ýmsum gerðum
Sýning á drekum í glerskáp á 1. hæð. Hver öðrum ógurlegri.

19:00 - 24:00

Drekar og forynjur
Á Barnadeild verður vakin athygli á úrvali bóka um dreka, risaeðlur og fleiri forynjur. Skemmtileg spil af ýmsum gerðum liggja frammi fyrir börnin.

19:00 – 24:00

Hafnfirsk tónlist hljómar á tónlistardeild
Hafnfirsk tónlist hljómar á tónlistardeild.

19:00 – 20:00

Þóra Elfa Björnsson – draumar og ráðningar þeirra
Þóra Elfa verður á 1. hæð og ræðir um drauma við gesti. Draumráðningabækur verða til afnota fyrir þá sem vilja ráða drauma sína.

19:00 – 24:00
Þýsk kvikmyndasýning í fjölnotasal

19:00 – 24:00

Ljóðaveisla
Á 1. hæð geta gestir tyllt sér og gluggað í ljóðabækur eftir þekkta og óþekkta höfunda. Ljóð eru góð!

21:00 – 24:00

Sigurlín Bjarney Gísladóttir rithöfundur les örsögur
Viðskiptavinum bókasafnsins gefst kostur á að koma fram með frumsamið efni (ljóð, smásögur, örsögur, vangaveltur um lífið og tilveruna…) og lesa upp fyrir gesti Safnanætur. Áhugasamir hafi samband á netfangið hronnh@hafnarfjordur.is.

21:00 - 24:00

Ása Marín Hafsteinsdóttir les ljóð
Ása Marín Hafsteinsdóttir, ljóðskáld, les úr ljóðabók sinni Að jörðu

23:00 – 24:00

Tónlistin ómar - Gítar og söngur
Jói og Einar spila og syngja fyrir gesti.

Bókasafn Hafnarfjarðar, Strandgötu 1

Kvikmyndasafn Íslands

21:00

Íslandsmynd Kafteins Dam í Bæjarbíói
Íslandsmynd Kafteins Dam er ein fegursta Íslandsmynd sem gerð hefur verið, tekin á Íslandi 1938 og 1939 af danska orlogskafteininum A. M. Dam. Stytt útgáfa af myndinni var sýnd á Heimssýningunni í New York árið 1939. Myndin verður sýnd á klukkustundar fresti fram eftir kvöldi.

Bæjarbíó, Strandgötu 6, Hafnarfirði.

Sögusafnið

19:00 - 24:00

Sögusýningin Perlunni
Merkilegustu augnablikin úr sögu þjóðarinnar færð í myndrænan búning. Hressir og kátir víkingar og handverksfólk sýna gestum vopn og handverk.

Sögusafnið Perlunni

Minjasafn Orkuveitu Reykjavíkur

19:00 - 24:00

Bíló í Elliðaárdal
Félagar í Smábílaklúbbi Íslands bjóða gestum og gangandi að spreyta sig á að stýra fjarstýrðum rafdrifnum smábílum í anddyri Minjasafnsins.

Minjasafn Orkuveitu Reykjavíkur, Rafstöðvarvegi 9

Árbæjarsafn

20:00& 21:00

Hvað dreymdi þig?
Símon Jón Jóhannsson heldur erindi um draumaráðningar og býður gestum að ráða drauma þeirra.

22:00 & 23:00

Rökkurleiðsögn um Árbæjarsafn.
Gengið um safnsvæðið með fjósalukt.

Árbæjarsafn, Kistuhyl

Listasafn Sigurjóns Ólafssonar

19:00 - 24:00

Hver er maðurinn?
Sýning á portrettum af þjóðkunnum íslendingum og getraunaleikur í tengslum við hana.

Listasafn Sigurjóns Ólafssonar, Laugarnestanga 70

Ásmundarsafn, Listasafn Reykjavíkur

19:00 – 19:45

Leiðsögn um sýninguna Rím
Rím - Verk Ásmundar Sveinssonar og listamanna samtímans. Á sýningunni er horft til listamanna sem glíma við sömu hluti og Ásmundur, en í nútímanum og í samhengi við okkar tíma og tíðaranda.

20:00 -21:00

Rím - fjölskylduleiðsögn í tali og tónum
Hin ástæla leikkona Guðrún Ásmundsdóttir bregður á leik í Ásmundarsafni ásamt hinni fjölhæfu tónlistakonu Kristínu Önnu Valtýsdóttur sem einnig er þekkt sem Kría Brekkan.

21:00 & 21:30 & 23:00 & 23:30

Tónlist fyrir draumavél
Draumavéla-innsetning með tónlist eftir raftónlistarmanninn Rúnar Magnússon. Gestir hlusta á tónlistina og horfa samtímis með lokuð augun á flöktandi ljósið frá draumavélinni sem framkallar munstur og myndir – vökudrauma. Flutningur verksins tekur 25 mín. Athugið takmarkaður fjöldi kemst að í hvert sinn.

22:00 – 22:45

LEIÐSÖGN UM SÖGU OG BYGGINGARLIST ÁSMUNDARSAFNS.
Leiðsögn um sögu og byggingarlist Ásmundarsafns með Guju Dögg Hauksdóttur, deildarstjóra byggingarlistardeildar Listasafns Reykjavíkur.

Ásmundarsafn, Sigtúni

Gljúfrasteinn - hús skáldsins

21:00 - 21:40

KK í stofunni á Gljúfrasteini
KK leikur á gítar og syngur eigin lög í stofunni á Gljúfrasteini. Kristján Kristjánsson, betur þekktur sem KK hóf atvinnumennsku í tónlist árið 1985 þegar hann lagðist í götuspilamennsku víðsvegar um Evrópu eftir að hafa stundað 4 ára nám við Tónlistarháskólann í Malmö. Árið 1990 kom hann heim til Íslands og hefur síðan starfað við tónlist, hljóðritun á eigin lagasmíðum og annarra, leikhús, kvikmyndir og nú síðast sem dagskrárgerðarmaður hjá RÚV.

Gljúfrasteinn – hús skáldsins, Mosfellsdal