Vetrarhátíð í Reykjavík hefur verið haldin árlega frá árinu 2002. Markmið hátíðarinnar er að lýsa upp mesta skammdegið í febrúar með viðburðum og uppákomum af ýmsu tagi, stórum sem smáum. Hátíðin gefur borgarbúum og gestum tækifæri til að taka þátt í fjölbreyttri dagskrá sér að kostnaðarlausu.
Hátíðin verður að þessu sinni haldin dagana 9.-12 febrúar 2012 eða frá fimmtudegi til sunnudags. Þema ársins er Magnað Myrkur og speglast það með ólíkum hætti í vel á þriðja hundrað viðburðum víðs vegar um borgina. Fastir liðir Vetrarhátíðar eru Safnanótt og Heimsdagur barna en í ár fara einnig fram Ljósmyndadagar og Sundlauganótt í fyrsta skiptið.
Vetrarhátíð í Reykjavík verður sett með glæsilegum útiviðburði fimmtudaginn 9. febrúar klukkan 19:30. Í kjölfarið munu fara fram ýmsir viðburðir í miðborginni í almennri dagskrá sem stendur yfir til sunnudags.
Dagskrá Vetrarhátíðar í Reykjavík. Dagskráin er birt með fyrirvara um breytingar.
Á Vetrarhátíð er í boði skemmtileg og fjölbreytt dagskrá fyrir börn t.d. listasmiðjur á Heimsdegi barna í Gerðubergi, Lególand, barnatónleikar og brúðusmiðja í Ráðhúsinu.
Hægt er að sjá alla viðburði sem henta börnum með því að velja "Dagskrá" og "Barnadagskrá".
Upplýsingar um dagskrá Heimsdaga barna
Ljósmyndadagar fara fram á Vetrarhátíð í fyrsta sinn og er fjölbreytt dagskrá í boði t.d. ljósmyndasýningar sem settar verða upp í miðbæ Reykjavíkur, ljósmyndasýning á Kex hostel í boði Voies Off, ljósmyndahátíð sem haldin er í Arles í Frakklandi, ljósmyndagreining og ljósmyndagöngur í stærstu hverfum borgarinnar. Auk fjölmargra annarra viðburða.
Hægt er að sjá alla viðburði Ljósmyndadaga með því að velja "Dagskrá" og "Ljósmyndadagar".
Safnanótt verður haldin á Vetrarhátið föstudaginn 10. febrúar í áttunda sinn. Þrjátíu og átta söfn á öllu höfuðborgarsvæðinu taka þátt að þessu sinni og hefur þátttaka aldrei verið meiri. Í boði er fjölbreytt dagskrá sem gestir á öllum aldri geta notið fram undir miðnætti.
Söfnin sem taka þátt eru: Bókasafn Kópavogs, Borgarbókasafn Reykjavíkur, Bókasafn Garðabæjar, Hönnunarsafn Íslands, Minjagarðurinn að Hofsstöðum, Bókasafn Hafnarfjarðar, Byggðasafn Hafnarfjarðar, Grafíksafn Íslands, Hitt Húsið, Listasafn Así, listasafn Einars Jónssonar, Listasafn Íslands, Gerðarsafn, Listasafn Sigurjóns Ólafssonar, Ljósmyndasafn Reykjavíkur, Molinn Ungmennahús, Nýlistasafnið, SÍM Húsið, Víkin-Sjóminjasafnið, Sögusafnið Perlunni, Tónlistarsafn Íslands, Þjóðminjasafn Íslands, Þjóðskjalasafn Íslands, Listasafn Reykjavíkur, Hafnarborg Menningar- og listamiðstöð Hafnarfjarðar, Árbæjasafn, Landnámssýningin Reykjavík 871+2, Leikminjasafn Íslands, Þjóðmenningarhúsið, Norræna Húsið, Borgarskjalasafn Reykjavíkur, Náttúrufræðistofa Kópavogs og Viðeyjarstofa.
Laugardaginn 11. febrúar er ungu fólki, 25 ára og yngra, boðið frítt inn á öll söfnin sem taka þátt í Safnanótt.
Hægt er að sjá alla viðburði Safnanætur með því að velja "Dagskrá" og "Safnanótt".
Safnanæturleikur fer fram föstudaginn 10. febrúar. Taktu þátt í leiknum með því að svara þremur laufléttum spurningum og safna þremur stimplum frá þremur mismunandi söfnum.
Fyrsti vinningur er ferð fyrir tvo í boði Icelandair til Seattle og passi á Seattle Art Museum. MP banki sérstakur bakhjarl Vetrarhátíðar gefur vinningshafanum 60.000 kr. í gjaldeyri. Annar vinningur er árskort í sundlaugarnar fyrir tvo. Þriðji vinningur er Menningarkort Reykjavíkur fyrir tvo.
Þátttökublað Safnanæturleiksins er að finna í dagkrá Vetrarhátíðar en hana er hægt að nálgast á öllum söfnum sem taka þátt í Safnanótt. Einnig er hægt að prenta út þátttökublað með því að smella á tengil "Dagskrá Vetrarhátíðar í Reykjavík" í texta hér að ofan við fyrirsögnina Vetrarhátíð í Reykjavík. Þátttökublaðið er skilað í þar til gerða kassa á söfnunum.
Frítt er í sérstakan Safnanæturstrætó sem gengur á milli safnanna föstudaginn 10. febrúar frá kl. 19:00-24:00. Upplýsingar um áætlun Strætó á Safnanótt
Sundlauganótt verður haldin í fyrsta sinn á Vetrarhátíð laugardaginn 11. febrúar. Í boði er fjölbreytt dagskrá í Laugardalslaug, Árbæjarlaug, Sundhöll Reykjavíkur og á Ylströndinni. Frítt er í sund frá kl. 20:00 til 24:00 laugardagskvöldið 11. febrúar.
Hægt er að sjá alla viðburði Sundlauganætur með því að velja "Dagskrá" og "Sundlauganótt".
Dagskráin er birt með fyrirvara um breytingar.
Höfuðborgarstofa, Aðalstræti 2, sími 590 1500 hefur umsjón með Vetrarhátíð í Reykjavík
Í stjórn Vetrarhátíðar sitja: Sif Gunnarsdóttir, Ingi Thor Jónsson, Logi Sigurfinnsson, Pálmi Freyr Randversson og Kristín R. Vilhjálmsdóttir.
Verkefnastjórar eru Karen María Jónsdóttir og Guðmundur Birgir Halldórsson.
Borgarmynd sá um gerð dagskrársíðunnar, ásamt Brian Suda og 25 Great Circles
MP Banki og Orkusalan eru styrktaraðilar Vetrarhátíðar í Reykjavík. Fjölmargir hafa stutt hátíðina með ýmsum hætti og verkefnisstjórn Vetrarhátíðar þakkar öllum sem komu að hátíðinni.